Justfornow

wegothisway

04.02.2008 11:34:37 / Harpa

!

Takk æðislega fyrir mig, ég skemmti mér alveg rosalega vel:D

Við skulum reyna að láta ekki heilt ár líða þangað til við hittumst svona næst:lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 11:21:24 / Harpa

Næsti hittingur!

Jæja, það styttist óðum í næsta hitting sem verður laugardaginn 2. febrúar:D

Það sem ég var að spá er hvort við gætum verið heima hjá mér? Elli verður líklegast ekki heima til alveg 21:00 - 22:00 og ég nenni ómögulega að finna pössun! Hvernig lýst ykkur á það (ef þið viljið ferkar hittast á öðrum stað endilega segið það, þá fæ einhvern til að passa8))?

Svo þurfum við líka að ákveða hvort við viljum elda saman og drekka um kvöldið... sem ég er meira en lítið til í:lol: 


» 12 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 17:59:51 / Salvör

26.janúar er dagurinn!

Jæja stúlkur þá er komið að því að einhver noti þessa síðu aftur!

Planið er að hittast lau 26.jan og stóra spurningin er hvað við viljum gera skemmtilegt!

Það eru víst allir lausir þennan dag skildist mér á Möggu! Viljið þið hafa þetta svipað og þarna síðast - sem var fyrir ári síðan vá - eða brydda upp á einhverju nýju?

Kv. Salvör


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 09:37:25 / Harpa

...

Ætli maður verði ekki að reyna að halda þessari síðu á lífi;)

Það er allt mjög gott að frétta héðan... Matthías verður frekari og frekari með hverjum deginum og ég verð þreyttari og þreyttari! Get bara ekki beðið eftir að skólinn verði loksins búinn og ég get slakað á... eða svona næstum því;)

Ég hef verið að reyna að fá Matthías til sofa aðeins lengur en til hálf sjö um helgar... en það gengur ekki neitt! Ég skil ekki hvaðan hann fær það að vera svona mikill morgunhani því ég er það engan veginn. Svo þegar ég loksins dröslast pirruð á fætur þá er hann sestur upp í rúminu sínu og bíður manni góðan daginn með þvílíku brosi og hlátri... maður getur eiginlega ekki annað en brosað á móti og hætt við að vera pirraður vegna svefnleysis;)

Það gengur bara ágætlega í skólanum núna, ég er allavega ekki enn komin eftirá;) En ég fæ mig samt ekki í að byrja á þessari blessuðu ritgerð í Haglýsingu! 20-22 bls fyrir 20. mars takk fyrir! Ert þú byrjuð Tóta? Ég er nú samt búin að finna fullt af heimildum og búin svona nokkurn vegin að ákveða hvernig ég ætla að hafa ritgerðina, það er þó eitthvað;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 13:47:40 / Aldís

Takk for sidst!

Hei skvísís!

 

Hvenær koma inn MYNDIR frá helginni????!

 

bleeee


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 21:49:50 / Salvör

La fête

Staður: Hrauntunga 12

Mæting: 18:00

Innkaup: Magga og Salvör

Matur: Kjúklingur, kartöflur, hrísgrjón og salat

Drykkur: Blue Angel - Parfait amour, vodka et sprite - et tout ce que vous voulez!

Tónlist: dance dance to the music we bring you - or bring some yourself

Umræðuefni kvöldsins: slúður, karlmenn, slúður, kynlíf, slúður, meikup, slúður og fleira ef vill

Planið er að útbúa ljúffenga bollu sem er að sögn stórhættuleg! Líklega munum við einnig standa í tilraunastarfsemi með Bacardi Razz, jarðaber og klaka. Svo mætum við að sjálfsögðu með hvaðeina annað sem við viljum drekka.


» 11 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 16:51:29 / Aldís

Next satturdei!!

Jæja stúlkur, þá er komið að þessu....næsta laugardag verður

the BIG HITTING!!

Hvernig væri að svona gáfaðir planarar eins og luffurnar okkar þær Salvör og Magga kæmu inn með LOKA-LOKAplan kvöldsins og hvað hver kæmi með og hvernig þetta væri allt saman??

Ég heimta þannig færslu!

íþróttaálfur out


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 14:11:12 / Harpa

Ég, um Matthías, frá Matthíasi, til Matthíasar!

Fyrst það er orðið svona langt síðan það var bloggað seinast þá ætla ég að koma með smá fréttir:)

Matthías er orðinn alltof stór og heldur bara áfram að stækka! Hann var farinn að segja "mam mam" alveg á fullu (og ég náttúrulega í skýjunum yfir því) en nú er skemmtilegra að segja "attu", hvað sem það á að þýða!
Hann kann líka að sína hvað hann er orðinn stór og vinkar bara þegar honum þóknast. Svo hef ég ekki hugmynd um hvernig ég fór að því, en ég kenndi honum að ulla á 10 mín í gær! Og nú er það voða sniðugt þegar hann sér mig, ullar bara á mig:|
Og annað sem honum finnst alveg rosalega skemmtilegt er að þegar ég styð hann og hann fær að hlaupa út um allt! Það er bara toppurinn;)

En það er samt ekkert að frétta af mér frekar en áður. Bara læri þegar ég er ekki að sinna Matthíasi, og sinni Matthíasi þegar ég er ekki að læra!

Ég var að spá í að halda smá kaffi fyrir okkur einhverja helgina um dag;) Hvenær eruði lausar? Ég ætla meira segja að rífa mig frá bókunum og baka smá:D 

Og farið að koma með fréttir af ykkur! Þetta gengur ekki svona lengur;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 19:20:47 / Salvör

Það verður partí!!

Le grand plan!!!

Kjúklingaréttur á la Harpa
Kartöflur í ofni / gratín
Gómsætt salat með jarðaberjum og furuhnetum
Fleira meðlæti...??

Vín með matnum - Hvítvín/Rauðvín/Búblí

.....last but not least......

Kokteill - mohito/sex on the beach/meira í kokteilabók pabba hennar Möggu:D
Aldís verður kokteila meistari meðan við hinar sýnum snilld okkar í eldhúsinu.

Ekkert mál að vera heima hjá mér eða ef einhver annar býðst til þess....??
Gætum haft japanskt dinnerpartý og setið á gólfinu hjá Söru;);)

Þá er bara að athuga hvenær fólk kemst í partyparty:D

2.feb - fös                                9.feb - fös
3.feb - lau                                10.feb - lau

Vinsamlegast gerið athugasemdir og komið endilega með nýjar hugmyndir!!!


» 13 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 10:06:00 / Aldís

JEIJ ég er komin með lykilorðið!

Jæja, þá er spurningin að ath. hvernig þetta matardæmi lítur út.......en jibbí jeij ég er að blogga :)

jæja fylgjast með fyrirlestri....out


» 11 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 00:16:08 / Tóta

Gleðilegt ár!

... þakka allt liðið.

http://www.flickr.com/photos/tota2204

... fariði nú að blogga skvísur... góða nótt... Tóta


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 10:59:58 / Tóta

Togstreyta hugans...

Sælar skvís!

Ég ætlaði að kommenta á færsluna hennar Salvarar hérna fyrir neðan, en þegar kommentið var orðið dáldið langt ákvað ég bara að setja það í færslu frekar ;)

Salvör, ég er sammála þér í því að piparkökuát er algjört möst í jólaprófum! ekki er verra að fá sér heitt kakó, eða kaffi með súkkulaði útí með... og kveikja á nokkrum kertum ;)

... við Harpa erum að fara í fyrsta prófið á laugardaginn, síðan eru fjögur próf í viðbót, tveir dagar á milli prófa... undanfarnir dagar hafa ekki nýst nógu vel í lestur hjá mér... virðist eiga aðeins of auðvelt með að gleyma mér í eigin hugsunum :S ekki nógu gott! ... er samt alltaf að vona að það breytist og ég stökkvi á fætur einn morgunin, eldsnemma full eldmóði til lesturs! Vinsamlegast sendið mér orkustrauma ;)

... best að gera aðra tilraun til lærdóms,

                               bkv. Tóta


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 11:21:43 / Magga

Hvað er þetta með þetta bloggleysi hér á bæ......??

Já við erum ekki að standa okkur í þessu stelpur.
Hvað varð um það að við ætluðum að taka okkur á??????

Þetta gengur ekki. Við verðum að vera duglegri, sérstaklega þar sem við hittumst ekki mikið og það er gott að fá smá fréttir :!::!::!::!:

Ég legg til að við verðum duglegri núna og látum vita af okkur á meðan við erum í prófunum, þó það sé bara til þess að láta vita að við erum á lífi......:!:

Þess vegna ætla ég að ríða á vaðið.......

Jæja skólinn officially búinn og próflesturinn tekinn við. Ég er orðin alveg þokkalega stressuð og tveir seinustu dagar hafa farið minnst í lestur. Já ég get ekki sagt að ég sé stolt af sjálfri mér..... :$ En ég verð dugleg í dag. Fyrir utan það að ég ætla rétt að stökkva í kringluna með Rósu og Brynju Karen. Já maður verður víst að hleypa sér út eitthvað milli þess sem maður les. Það gengur ekki að hanga inni allan daginn og fara svo kannski út um kvöldið. Fyrst maður er í próflestri þá verður maður að hleypa smá ljósi inn í lífið sitt á daginn. Þó það sé ekki nema að stökkva út í búð í smá stund. Ekki skrítið að námsmenn verði þunglyndir á þessum árstíma, lítil birta og alltaf með nefið oní bókunum og taka ekki eftir þessari litlu ljósglætu sem lýsir inn um gluggann.... :S

Ég er ekki enn farin að hugsa um jólin.... Mun líklegast ekki gera það fyrr en ég er búin í prófunum. Á eftir að kaupa allar jólagjafir og vantar hugmynd að flestum. Sjett... En jæja það verður gott að komast út eftir fyrsta prófið og fara í jólagjafaleiðangur. Verð bara að gefa mér smá tíma í lestrinum til að finna einhverjar hugmyndir. Svo er ég staðráðin í því að taka allavega eitt stykki jólarúnt þegar það fer að nálgast jólin og skoða öll jólaljósin sem verður búið að hengja upp. Mér hlýnar bara við hugsunina um það. Við stelpurnar höfum gert það síðan við fengum bílpróf og svo fór maður auðvita alltaf með foreldrunum þegar maður var yngri :D

Jæja ég ætla að skella mér í lesturinn áður en ég dett niður í minningar um jólarúntana í den.

Adios amigos ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 13:14:58 / Magga

Freakin´ cold..........brrrrrrrrrr múfasa

Já hvað er málið.

Þegar ég var á leiðinni á Bókhlöðuna í morgun þá var mér litið á hitamælinn á Reykjavíkurveginum og það var -11°C. Ekki hægt.
Gvuð ef það væri ekki sól í dag þá hefði ég ekki hætt mér út úr húsi.

En út í allt annað. Fór með Rósu, Jóa og Brynju Karen í ungbarnasund í morgun og var að taka myndir. Algjörar rúsínur.... :D
Sum börn alveg skríktu af gleði, önnur voru bara ekki að fatta hvað var í gangi (eins og Brynja Karen) og önnur grétu. Brynja vildi bara frekar stara á vegginn með öllum litríkum myndunum heldur en að fylgjast með því hvað var að gerast. Hehe. Ég tók alveg slatta af myndum.

En jæja ætli ég þurfi ekki að koma mér aftur í lesturinn ef ég ætla að ná einhverjum árangri í dag.

Sally hvar ertu?????????????


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 21:24:18 / Harpa

Partý?!?

Ég ætla að halda upp á afmælið mitt laugardaginn 25. nóvember næstkomandi! Planið er að hittast heima hjá Ásdísi og Guðrúnu á kleppsveginum, læt ykkur fá nákvæmari upplýsingar seinna;) Og svo fara niðrí bæ... eru þið ekki allar lausar?:)

Annars er helst að frétta frá mér að Matthías er mjög kvefaður og með hálsbólgu, engann hita samt. En hann sefur voðalega lítið (og ekki svaf hann mikið fyrir) og er lítill í sér. Við fórum með hann til læknis í gær til að útiloka eyrnabólgu (sem betur fer er ekki eyrnabólga! 7, 9 13) en hann er með einhvern þrýsting í eyrun útaf kvefinu. Og svo er hann líka með gröft í augunum útaf kvefinu og er ég meira og minna búin að vera að þvo honum um augun í allan dag:( Þannig ég hef ekki náð að læra eins mikið og ég hefði þurft að gera um helgina, en það verður að hafa það! Svo veit ég ekkert hvernig næsta vika fer og hvort ég komist mikið í skólann, því ég vil alls ekki senda hann til dagmömmunar svona slappann, þótt hann sé hitalaus.

En ég ætla að reyna að læra smá núna fyrst prinsinn á heimilinu er loksins sofnaður!


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill